Listin var án landamæraVesturafl

Nú er lokið velheppnaðri listaviku á Ísafirði í tengslum við List án lándamæra. Kaffihúsið var opið alla vikuna með uppákomum og sýningum og var fullt út úr dyrum alla daganna. Myndir sem teknar voru þessa daga má sjá hér.

List án landamæraVesturafl

Kaffihús verður opnað í tengslum við List án landamæra dagana 27. apríl til 2. maí 2009 . Kaffihúsið verður í Aðalstræti 24 (Þar sem leikfangaverslunin Bimbó var) og er opnunartíminn frá 14 til 18. Kaffiveitingar verða seldar gegn vægu verði.

 

Hátíðin List án landamæra er haldin árlega á Íslandi og er markmið hennar að fatlað og ófatlað fólk sameinist í listinni, að ólíkir hópar vinni saman og liði þannig til aukins skilnings milli fólks, samfélaginu til góðs.

 

Ýmsir munir verða til sölu og sýnis. Má þar nefna málverk, handgerð kerti, gler-, leir og mósaikverk. Gestir geta einnig tekið þátt í að búa til listaverk á staðnum.

 

 

 

 

 

Vegleg skemmtidagskrá verður þessa daga:

 

 

27. apríl kl: 16:00 til 17:00: Rauða Kross bandið tekur vel valda slagara.

28. apríl kl: 17:00 til 18:00: Hjördís Jónsdóttir spilar á gítar og stjórnar fjöldasöng.

29. apríl kl: 15:30: Benni Sig og Gummi Þórarins úr Víkinni taka nokkur vel valin lög.

30. Apríl Kl: 16:00: Muggi og Hjalti Þórarins rokka feitt

 

01. maí kl: 17:00: Dóri og Daði úr MÍ koma og syngja lagið kósíkvöld

02. maí kl: 15:00: Hermann Ási og Íris Kramer verða með tónlistarflutning

02. maí kl: 17:00: Gjörningur allir hvattir til að koma og taka þátt. Kannski verður slegið met?

Heilsubrauð úr speltiVesturafl

Við lofuðum fyrir löngu síðan að setja inn uppskrift af heilsubrauðinu okkar, sem við bökum hér oft og gefum gestum og gangandi. Það slær alltaf í gegn..


Speltbrauð

5 dl spelt (gróft)

 1 dl sólblómafræ, sesamfræ, birkifræ og fl. fræ eftir vild

3 tsk  vínsteinslyftiduft

1 ½ - 2 tsk. sjávarsalt

2 dl ab – mjólk

1 ½  dl sjóðandi vatn

Blandið þurrefnunum saman í skál. Hellið vökvanum útí og blandið varlega saman. Hrærið sem minnst, í stórri skál,  og alls ekki í hrærivel. Hægt er að gera fínna brauð með því að setja saman við döðlur, gráfíkjur og aðra þurkaða ávexti, og þá er gott að sleppa fræjunum og nota fínt spelt í staðin fyrir gróft. Þessi uppskrift er í eitt form.

Setjið degið í smurt brauðform og bakið í ca. 30 mín við 200°

Opið hús í VesturafliVesturafl

Í gær 6. mars tókum við á móti gestum hér í nýja húsnæðinu okkar.  Við vorum mjög ánægð með hversu margir komu og ekki síður hve ánægt fólk var og  samgladdist okkur með nýja húsnæðið og starfsemina alla. Við buðum upp á heimabakað bakkelsi, m.a. heilsubrauðið okkar góða í 3 útgáfum og erum búin að lofa að koma uppskriftinni hér inn á síðuna á næstunni. Efitr allan gestaganginn áttum við svo góða stund saman með stjórn hússins. Auðvitað voru teknar myndir þær er hægt að skoða hér.
kveðja/Sigga

Nýtt húsnæði.Vesturafl

jæja þá er kominn tími til að skrifa  um það hvar við erum niðurkomin? við erum komin með framtíðar húsnæði að Mánagötu 6 Ísafirði. Á föstudaginn 6. mars verður opið hús fyrir alla sem vija koma og sjá nyja staðinn. Okkur leist strax vel á þennan stað og okkur líður mjög vel hér.Kiss Bogga ,Sigrún

okkur líður velVesturafl

við hittumst daglega til að spjalla og fáum okkur kaffi ,á föstudögum eldum við heitan mat sem er frábært og við lærum að hvort öðru. þemað í þessari viku er að þæfa ull og búa til fallega hluti,við notum mikið af gömlum jólakortum til að búa til ný,annas erum við að spjalla um daginn og veiginn.
kveðja.
Sigrún og Diddi.... Nánar

KöbenVesturafl

Jæja, nú er sko komin tími til að blogga Hlæjandi
Við erum að fara í Köben þann 17.ágúst n.k. og erum á fullu að safna okkur fyrir ferðinni.  Sigga er búin að segja okkur hryllingsögur þaðan og við komum þangað og málum bæinn rauðann ef hann er ekki orðin það.. geðsjúklingarnir á vestur Íslandi Svalur
Nei nei, þetta verður bara frábær ferð og við ætlum að skemmta okkur og hafa það gott. 
sjáumst næst

sing

Við héldum að vorið væri komiðVesturafl

Það er kalt í dag. Við héldum um daginn að vorið væri komið, fengum nokkra daga með bliðu, austanátt og hlýjindum.
Viljum bara minna á Flóamarkaðinn okkar á morgun - laugardag inn í Ljóni.

kv
S.M.

Flóamarkaðurinn....Vesturafl

Við hér í Vesturafli höfum tekið við Flóamarkaði JCI. En eins og allir hér vestra vita þá hefur JCI félagskapurinn rekið flóamarkað um árabil  með dugnaði og miklum vinsældum. Í vetur hefur flóamarkaðnum aftur á móti verið lítið sinnt og voru margir farnir  að sakna þessarar starfsemi. Þegar JCI bauð okkur að taka markaðinn að okkur í prufu til eins árs þá vorum við fljót að taka því. Síðustu viku höfum við svo verið að þrífa og laga til á loftinu í Ljóninu þar sem markaðurinn er til húsa. Í gær var svo fyrsti opnunardagurinn hjá okkur. Það kom fullt af fólki og erum við  mjög ánægð með þær móttökur sem við höfum fengið.

Það mun verða opið hjá okkur á laugardögum frá kl. 13:00-15:00 og við erum á loftinu í Ljóninu.
Þar er allt mögulegt hægt að fá...föt, leirtau, styttur, hjól, skó, húsgögn, leikföng, skíðaskó.......og margt margt fl.

Svo tökum við auðvitað á móti dóti sem þið hafið ekki lengur  not fyrir en hugsanlega einhver annar. þá hringið þið  bara í síma Vesturafls 4564406 eða síma Hörpu 8698989. 

s.mag

Við erum svo lélegir bloggararVesturafl

Erum alltaf að reyna að taka okkur á og láta í okkur heyra en það er barasta svo mikið að gera hjá okkur að þetta blogg situr á hakanum.
Það er ennþá vetur hér fyrir utan gluggann,,,en það er ennþá birta og hlýja hér innandyra.
Mósaikið hefur verið ráðandi síðurstu vikurnar og borðin útungast hér eins og  úr eggjum  í hænsnakofa.......!!!
Höfum samt fengið smá fræðslu, eins og í gær en þá kom hún Hrefna Magnúsdóttir og sagði okkur eiginlega allt sem við þurftum að vita..........hún hélt samt að hún væri komin til að segja okkur allt um tryggingar, en svo þurftum við að vita allt annað líka og það stóð ekki í henni Hrefnu.
Kærar þakkir Hrefna, vonandi kemurðu fljótt aftur.

kv
s.mag - Sigrún.

Vesturafl geðræktarmiðstöð

Miðstöð og endurhæfing fyrir fólk með skert lífsgæði.

Staðsett: Mánagötu 6 Ísafirði
Opið alla virka daga frá 10:00 - 16:00
sími 4564406
netf: vesturafl@svest.is
starfsemnn: Harpa og Sigríður

Flóamarkaður Vesturafls
Ljóninu á Ísafirði
opinn: fimmtud. 15:00-18:00 og sunnud. 14:00-15:00
Tökum á móti öllum notuðum munum, húsgögnum og fötum.

Auglýsing

Geðorðin 10

1. Hugsaðu jákvætt., það er léttara.
2. Hlúðu að því sem þér þykir vænt um.
3. Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir.
4. Lærðu af mistökum þínum.
5. Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina.
6. Flæktu ekki líf þitt að óþörfu.
7. Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig.
8. Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup.
9. Finndu og ræktaðu hæfileika þina.
10. Settu þér markmið og láttu drauma þína rætast.

Könnun

Hvað gerir þú til að bæta heilsu þína ?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan